Sá dagur hefur loks runnið upp að leikkonan Lindsay Lohan og plötusnúllan Samantha Ronson viðurkenni hið augljósa og staðfesti samband sitt fyrir alþjóð.

Sá dagur hefur loks runnið upp að leikkonan Lindsay Lohan og plötusnúllan Samantha Ronson viðurkenni hið augljósa og staðfesti samband sitt fyrir alþjóð.

Þetta gerðu stúlkurnar loksins á dögunum þegar þær hringdu inn í beina útsendingu útvarpsþáttar til að ræða um flugslysið sem heimti fjögur mannslíf og slasaði alvarlega þá Travis Barker, trommuleikara Blink 182, og DJ AM.

Undir lok samtalsins spurði útvarpsmaðurinn hversu lengi þær vinkonurnar væru búnar að vera par og var svar Lohan býsna stutt og einfalt. „Í mjög langan tíma,“ sagði leikkonan unga sem hefur hingað til ekki viljað viðurkenna ástarsamband stúlknanna opinberlega en hefur nú tekið allan vafa af um það mál.