Breskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hafi ákveðið að afplána afganginn af dómi sínum innan veggja fangelsis en ekki inni á meðferðarstofnun eins og honum stóð til boða.

Breskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Blake Fielder-Civil, eiginmaður söngkonunnar Amy Winehouse, hafi ákveðið að afplána afganginn af dómi sínum innan veggja fangelsis en ekki inni á meðferðarstofnun eins og honum stóð til boða. Blake var dæmdur til 27 mánaða fangelsisvistar fyrir ofbeldisbrot og fleira og mun hann losna úr fangelsi í desember.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Blake hafnar því að losna fyrr úr fangelsi en í síðustu viku hafnaði hann tilboði um að fá lausn úr fangelsi gegn því að hann flytti inn til móður sinnar og væri undir ströngu eftirliti. vij