Nýjasta plata Oasis hefur lekið á netið samkvæmt heimildum BBC. Platan, sem ber heitið Dig Out Your Soul, á að koma út 6. október en framtakssamir netverjar geta þegar nálgast plötuna með ólögmætum hætti á spjallborðum og aðdáendasíðum.
Nýjasta plata Oasis hefur lekið á netið samkvæmt heimildum BBC. Platan, sem ber heitið Dig Out Your Soul, á að koma út 6. október en framtakssamir netverjar geta þegar nálgast plötuna með ólögmætum hætti á spjallborðum og aðdáendasíðum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem plata sveitarinnar lekur á netið því síðasta plata hennar, Don't Believe The Truth, var komin á netið einum mánuði fyrir áætlaðan útgáfudag. Þrátt fyrir lekann mun hljómsveitin ekki flýta útgáfu plötunnar. vij