LEIKKONAN Meg Ryan segir fyrrverandi eiginmann sinn, Dennis Quaid, hafa haldið framhjá henni ítrekað á meðan á hjónabandi þeirra stóð. Framhjáhaldið hafi staðið yfir í langan tíma og hún hafi komist að ýmsu um það eftir skilnaðinn.
LEIKKONAN Meg Ryan segir fyrrverandi eiginmann sinn, Dennis Quaid, hafa haldið framhjá henni ítrekað á meðan á hjónabandi þeirra stóð. Framhjáhaldið hafi staðið yfir í langan tíma og hún hafi komist að ýmsu um það eftir skilnaðinn. Frá þessu segir leikkonan í viðtali í tímaritinu InStyle .
Í frétt á vefsíðu Fox- sjónvarpsstöðvarinnar segir að Ryan hafi verið í tygjum við leikarann Russell Crowe fyrir átta árum og það hafi gert út um hjónaband þeirra Quaids. Ryan segir skilnaðinn ekki tengjast sambandinu við Crowe.