Lauria á Bridgebase.
Norður | |
♠Á74 | |
♥K1092 | |
♦ÁK876 | |
♣2 |
Vestur | Austur |
♠KD62 | ♠53 |
♥G | ♥D753 |
♦G9432 | ♦10 |
♣KG9 | ♣1087653 |
Suður | |
♠G1098 | |
♥Á862 | |
♦D5 | |
♣ÁD5 |
Sagnir ítölsku meistaranna Lauria og Versace fengu ekki háa einkunn hjá áhorfendum á Bridgebase, enda 6♥ afleit slemma. En Lauria er engum líkur í úrspilinu. Vestur kom út með ♥G.
Lauria hitti í trompið, tók á ♥K og lét ♥10 rúlla hringinn í öðrum slag. Nú kemur til álita að trompa lauf og treysta á 3-3-legu í tígli, en Lauria leist ekki á þann kost. Þess í stað aftrompaði hann austur. Vestur henti fyrst spaða, síðan laufi og loks tígli í hjörtun. Lauria fór næst í spaðann, læddi áttunni í gegn og spilaði svo ♠Á og spaða. Vestur komst skaðlaust út á tígli, en örlög hans voru innsigluð, því hann mátti ekkert spil missa í síðasta spaðann. Hann gerði sitt besta með því að henda ♣G, en Lauria las stöðuna rétt og lagði niður ♣Á.