Sló í gegn „Við erum tveir sauðir sem tókum okkur til árið 2004 og 2005 og héldum sauðamessu til heiðurs sauðkindinni.
Sló í gegn „Við erum tveir sauðir sem tókum okkur til árið 2004 og 2005 og héldum sauðamessu til heiðurs sauðkindinni. Vegna fjölda áskorana létum við undan að endurtaka leikinn nú,“ segir Gísli Einarsson sjónvarpsmaður um Sauðamessu 2008 sem fram fer í Borgarnesi 4. október. „Síðast komu 5000 manns,“ segir Gísli og er ekki að efa að margir bíða spenntir eftir að mæta sauðkindinni aftur að þessu sinni enda margt skemmtilegt um að vera þennan dag.