KONU á fimmtugsaldri hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi, í kjölfar þess að hún játaði að hafa ætlað 450 grömm af kannabisefnum og 12 grömm af amfetamíni til sölu. Konan var handtekin aðfaranótt laugardags á heimili sínu á Sauðárkróki.

Í tilkynningu lögreglu kemur fram að í tengslum við málið hafi fjórir verið handteknir, fyrir utan konuna voru tveir teknir í Reykjavík og einn á Suðurnesjum. Í húsleit í Reykjavík var lagt hald á fíkniefni og vopn. Öllum hefur verið sleppt úr haldi.

Fjögur lögregluembætti komu að aðgerðinni auk sérsveitar ríkislögreglustjóra. andri@mbl.is