eQ Bank, sem er í eigu Straums fjárfestingarbanka, veitir bestu ráðgjöf finnskra greinenda um fjárfestingar í smærri skráðum fyrirtækjum.

eQ Bank, sem er í eigu Straums fjárfestingarbanka, veitir bestu ráðgjöf finnskra greinenda um fjárfestingar í smærri skráðum fyrirtækjum. Í tilkynningu frá Straumi segir að þetta komi fram í „The European Small Caps Research Yearbook 2008“ sem greiningarfyrirtækið AQ Research gefur út árlega.

Niðurstaðan byggist á hlutlægri mælingu á því hvort ráðleggingar greinenda frá apríl 2007 til loka mars 2008 reyndust gagnlegar. bg