Tónleikar Jóhann Kristinsson heldur útgáfutónleika sína í kvöld klukkan átta á Kaffi Rósenberg, í tilefni af útkomu plötunnar Call Jimmy, sem nýverið kom út.

Tónleikar

Jóhann Kristinsson heldur útgáfutónleika sína í kvöld klukkan átta á Kaffi Rósenberg, í tilefni af útkomu plötunnar Call Jimmy, sem nýverið kom út. „Það er engin upphitun eða neitt slíkt, bara ég með gítarinn, en ég lofa stuði og standpínu,“ segir Jóhann eiturhress að vanda, en hann landaði plötusamningi í Chicago á dögunum. Ekkert kostar inn á tónleikana og verður diskurinn til sölu á staðnum á tilboðsverði.