Talsmaður neytenda hefur sent ljósmyndastofunni Pix-myndum tilmæli í kjölfar kvartana foreldra vegna sölu á skólamyndum. Á heimasíðu talsmanns neytenda www.tn.

Talsmaður neytenda hefur sent ljósmyndastofunni Pix-myndum tilmæli í kjölfar kvartana foreldra vegna sölu á skólamyndum.

Á heimasíðu talsmanns neytenda www.tn.is kemur fram að fyrirtækið hafi lengi selt skólamyndir til forráðamanna skólabarna en margar kvartanir hafi borist frá þeim sem ekki hafi óskað eftir myndum. Eru þeir ósáttir við að þurfa að afpanta myndir sérstaklega og jafnvel senda þær til baka í kjölfar þess að ekki var brugðist við heimsendum miðum um afpöntun. Fer hann jafnframt fram á að frá og með yfirstandandi skólaári verði aðeins þeir krafðir um greiðslu sem pantað hafa skólamyndir.

ej