HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt tvo táninga, pilt og stúlku, í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Bæði þurftu þau að greiða sakarkostnað, hann sextán þúsund krónur en hún rúmar tíu þúsund kr.

Pilturinn sem er sextán ára skallaði lögreglumann á lögreglustöðinni á Suðurnesjum í desember á síðasta ári. Stúlkan sem er sautján ára beit lögreglukonu í upphandlegg, er þær voru í lögreglubifreið, í nóvember á síðasta ári. Bæði játuðu brot sín greiðlega.

andri@mbl.is