Lögreglan á Hvolsvelli varar við miklum vatnavöxtum í ám á hálendi innan umdæmisins. Lögreglan hefur það sem af er þessari viku aðstoðað nokkra ökumenn sem fest hafa bifreiðar sínar í ám.

Lögreglan á Hvolsvelli varar við miklum vatnavöxtum í ám á hálendi innan umdæmisins. Lögreglan hefur það sem af er þessari viku aðstoðað nokkra ökumenn sem fest hafa bifreiðar sínar í ám. Þeim sem eiga erindi inn á þessar slóðir er bent á að hafa samband við Vegagerðina eða lögreglu til að fá upplýsingar um færð. áb