— Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
* Kokkurinn og trommuleikarinn, Númi Thomasson (t.v.) hefur nú tekið í gagnið eldhúsið fyrir ofan öldurhúsið Boston við Laugaveg.

* Kokkurinn og trommuleikarinn, Númi Thomasson (t.v.) hefur nú tekið í gagnið eldhúsið fyrir ofan öldurhúsið Boston við Laugaveg. Númi var sérlegur kokkur Bjarkar á Volta-túrnum sem lauk nú fyrir skemmstu og bjuggust því margir við að uppáhaldsréttur Bjarkar yrði á matseðlinum nýja. Svo mun þó ekki vera ef eitthvað er að marka yfirlýsingar Núma í fjölmiðlum og ber hann fyrir sig trúnaðarsambandi kokks og kúnna.

Spurningin er hins vegar sú hvort Núma snúist ekki hugur þegar kreppan fer að segja til sín í vetur og sultarólin herðist um lendar okkar Íslendinga. Alltént má reikna með öruggum viðskiptum erlendra Bjarkaraðdáenda ef „chicken a la Björk“ er að finna á matseðlinum.