Ein kona var nefnd í fréttaskýringu DV um klofning í Sjálfstæðisflokknum.

Ein kona var nefnd í fréttaskýringu DV um klofning í Sjálfstæðisflokknum. Aðspurð segir Ragnheiður Elín Árnadóttir þingmaður skrifin ekki lýsa áhrifaleysi sjálfstæðiskvenna: „Svokölluð fréttaskýring ritstjóra DV um arma í Sjálfstæðisflokknum er ein jafn-fáránlegasta grein sem birst hefur í fjölmiðli. Enda leitun að manni með lélegri tengsl inn í Sjálfstæðisflokkinn en ritstjóri DV hefur. Að ekki skuli minnst á nema eina konu, þegar stillt er upp í meintar fylkingar, er bara ein birtingarmynd þess hve fáránleg þessi framsetning er.“ bee