Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Dag Gunnarsson dagur@mbl.

Eftir Dag Gunnarsson

dagur@mbl.is

EVRÓPUNEFND ríkisstjórnarinnar fundaði í gærmorgun með Joaquín Almunia, framkvæmdastjóra gengis- og efnahagsmála innan ESB, og sagði hann að Íslendingar ættu ekki kost á öðru en að ganga í ESB til að geta tekið upp evruna.

Ágúst Ólafur Ágústsson, og Illugi Gunnarsson, formenn Evrópunefndarinnar, segja að íslenska nefndin hafi fengið alveg skýr svör um að Almunia teldi að breyta þyrfti lögum ESB til að Íslendingar gætu tekið upp evru án inngöngu og að fyrir því væri ekki pólitískur vilji.

„Almunia sagði að lagalega væri ekki möguleiki að fara þessa leið og að menn yrðu einfaldlega að vera aðilar ef þeir ætluðu að taka upp evruna,“ sagði Ágúst Ólafur í samtali við mbl.is. „Hann sagði að ekki væri hægt að líta til þeirra smáríkja sem hafa tekið upp evruna, eins og Andorra, Mónakó, San Marínó og Vatíkansins, með sama hætti og við myndum gera því þau ríki voru auðvitað með gömlu myntir aðildarríkja Evrópusambandsins, líru, franka eða peseta og þessi ríki hefðu ekki sjálfstæða peningamálastefnu, hefðu ekki seðlabanka, þannig að það væri ekkert hald í þeim fordæmum.“

Illugi Gunnarsson sagði að afstaða Almunia kæmi ekki á óvart. „Almunia túlkar lög ESB sem heimila öðrum ríkjum að nota evruna mjög þröngt. Þetta eru lög sem menn hafa notað til að semja við önnur ríki um notkun á evrunni og Almunia telur að þeim þyrfti að breyta ef þau ættu að ná yfir Ísland og hann telur pólitískt útilokað að gera slíkt.“

„Ferðin hefur verið mjög gagnleg. Það hefur allt gengið mjög vel og nú höfum við einnig fengið mjög afgerandi svör embættismanna hvað varðar upptöku evrunnar. Síðan leggja íslensk stjórnvöld sitt mat á þetta þegar þau fara að velta framtíðarskipan mála fyrir sér,“ sagði Illugi að lokum.