Benóný í hlutverki Kinkis
Benóný í hlutverki Kinkis
KINKI – skemmtikraftur að sunnan , er heiti einsöngleiks sem Lýðveldisleikhúsið sýnir í tónlistarhúsinu Salnum í Kópavogi í kvöld.
KINKI – skemmtikraftur að sunnan , er heiti einsöngleiks sem Lýðveldisleikhúsið sýnir í tónlistarhúsinu Salnum í Kópavogi í kvöld.

Einsöngleikurinn hverfist um kertaljósakonsert Kinkis Geirs Ólafssonar og verður þetta eina tækifæri íbúa höfuðborgarsvæðisins til að sjá verkið.

Benóný Ægisson, höfundur þess og leikari, hefur starfað sem rithöfundur frá 1974. Hann hefur starfað í leikhúsi heima og erlendis og er Kinki – skemmtikraftur að sunnan annar einleikur hans. Leikstjóri er Guðjón Sigvaldason. Sýningin í kvöld hefst klukkan 20.