Nýjasta nýtt „Ég ætla ekki að neita því. Þetta getur ekki klikkað,“ segir rapparinn Dabbi T , einn meðlimur rappsveitarinnar 32C, aðspurður hvort hin nýstofnaða sveit sé næsta ofurhljómsveit landsins.

Nýjasta nýtt

„Ég ætla ekki að neita því. Þetta getur ekki klikkað,“ segir rapparinn Dabbi T , einn meðlimur rappsveitarinnar 32C, aðspurður hvort hin nýstofnaða sveit sé næsta ofurhljómsveit landsins. 32C skipa, ásamt Dabba, Nagmús úr Subterranean og MC Gauti. Sveitin hefur einungis verið starfrækt í um mánuð en sveitin mun spila á Airwaves-hátíðinni þetta árið. Fyrsta lag sveitarinnar, É É É É, fer í spilun á útvarpsstöðvum landsins á föstudaginn. Þar er yrkisefnið ágæti meðlima 32C.