Stelpuhelgi „Yfirskrift helgarinnar er „Á tímum sem þessum“ og viljum við velta fyrir okkur hvaða hlutverkum við gegnum sem konur og stúlkur á okkar tímum,“ segir Erdna Varðardóttir um stelpuhelgi í Hvítasunnukirkjunni.

Stelpuhelgi

„Yfirskrift helgarinnar er „Á tímum sem þessum“ og viljum við velta fyrir okkur hvaða hlutverkum við gegnum sem konur og stúlkur á okkar tímum,“ segir Erdna Varðardóttir um stelpuhelgi í Hvítasunnukirkjunni. Erdna bætir við að með hlutverkum eigi hún við öll þau hlutverk sem konur vilji taka að sér. Úrelt sé að tengja eingöngu móður- og eiginkonuhlutverk umræðu um trú. „Við hittumst til að efla okkur í hverju því hlutverki sem við erum í.“