Thriller Mest selda plata sögunnar.
Thriller Mest selda plata sögunnar.
BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn Michael Jackson er harðákveðinn í því að næsta plata hans verði betri en platan Thriller sem kom út árið 1982, og er mest selda plata allra tíma enn þann dag í dag.

BANDARÍSKI tónlistarmaðurinn Michael Jackson er harðákveðinn í því að næsta plata hans verði betri en platan Thriller sem kom út árið 1982, og er mest selda plata allra tíma enn þann dag í dag.

Jackson, sem varð fimmtugur fyrir skömmu, sagði lagahöfundum sínum að hann ætlaði ekki að gefa út plötu fyrr en hún væri orðin að minnsta kosti jafngóð og Thriller .

„Nýja platan hans verður að vera mögnuð. Hún verður að vera betri en Thriller . Hann vill fá frábærar melódíur. Við erum þegar búin að semja nokkur lög, en við höfum ekki hugmynd um hvenær platan kemur út. Hann er alltaf að fresta henni,“ segir rapparinn Ne-Yo sem er einn þeirra sem koma að gerð nýju plötunnar.