Warren Buffett
Warren Buffett
BERKSHIRE Hathaway, fjármálafyrirtæki Warrens Buffetts, hefur fjárfest fyrir fimm milljarða dala í Goldman Sachs.

BERKSHIRE Hathaway, fjármálafyrirtæki Warrens Buffetts, hefur fjárfest fyrir fimm milljarða dala í Goldman Sachs. Kaupin þykja mikil traustsyfirlýsing fyrir fyrirtækið, annan af tveimur fjárfestingabönkum sem stóðu af sér umrótið á fjármálamörkuðunum en leituðu engu að síður skjóls með því að breyta rekstrarforminu í almennan banka.

Til viðbótar fær Berkshire rétt á kaupum á öðrum fimm milljörðum dala í almennum hlutabréfum.

bvs@mbl.is