Knattspyrnulið BÍ/Bolungarvíkur hélt á laugardag æfingu, þar sem ungir og gamlir öttu kappi.
Knattspyrnulið BÍ/Bolungarvíkur hélt á laugardag æfingu, þar sem ungir og gamlir öttu kappi. Nokkuð var um áhorfendur þrátt fyrir votviðri og rok, en það létu þrír ungir drengir ekki á sig fá, sem þustu inn á völlinn, kviknaktir, svokallaðir strípalingar eða beru mennirnir. Af tillitssemi við mæður þeirra verða nöfn þeirra hvorki birt, né myndir af atburðinum, en myndin hér til hliðar er sviðsett. tsk