Britney Búin að fá alveg meira en nóg af Malibu.
Britney Búin að fá alveg meira en nóg af Malibu. — Reuters
BANDARÍSKA söngkonan Britney Spears hefur sett húsið sitt á sölu, en kaupverðið er 7,9 milljónir dollara – um 750 milljónir íslenskra króna.

BANDARÍSKA söngkonan Britney Spears hefur sett húsið sitt á sölu, en kaupverðið er 7,9 milljónir dollara – um 750 milljónir íslenskra króna. Britney hefur búið í húsinu í rétt tæplega tvö ár, en það er í Malibu í Kaliforníu og skartar meðal annars sex svefnherbergjum, sex baðherbergjum og þremur bílskúrum. Britney vill hins vegar selja húsið af því að hún vill fá meira næði.

„Hún hefur stefnt að því mjög lengi að fá meira næði til þess að ala upp strákana sína tvo,“ segir vinkona söngkonunnar um málið.