Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir að skýr efnisleg rök hafi verið færð fyrir því af sinni hálfu að auglýsa lögreglustjóraembættið á Suðurnesjum laust og hann hafi ekki búist við þessum viðbrögðum Jóhanns R. Benediktssonar.
„Að lögreglustjóri bregðist við á þann veg, sem fyrir liggur, kom mér á óvart,“ segir Björn.
„Ég óska honum og samstarfsmönnum hans, sem nú kveðja embættið, velfarnaðar og þakka þeim samfylgdina síðan 1. janúar 2007 þegar embættið færðist frá utanríkisráðuneyti undir dóms- og kirkjumálaráðuneyti. Nú blasir við að fylla í skörð þeirra, sem kveðja, og tryggja framtíð hins mikilvæga starfs, sem unnið er við embættið,“ segir Björn. mbl.is