Sigurjón Þórðarson
Sigurjón Þórðarson
STJÓRN kjördæmafélags Frjálslynda flokksins í Reykjavíkur norður skorar á Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingismann, að bjóða sig til formanns flokksins.

STJÓRN kjördæmafélags Frjálslynda flokksins í Reykjavíkur norður skorar á Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingismann, að bjóða sig til formanns flokksins. Stjórnin telur Frjálslynda flokkinn eiga góð sóknarfæri í næstu alþingiskosningum og mikilvægt sé því „að kalla til forystu alla þá sem líklegastir séu til að taka með röggsemi á vandamálum flokksins og sameina krafta til sóknar. Við treystum engum til þess betur en Sigurjóni Þórðarsyni sem hefur reynslu og er í góðu sambandi við grasrót flokksins sem og forystu.

Þess vegna skorum við á Sigurjón Þórðarson að gefa kost á sér til formennsku á landsþingi flokksins í janúar 2009,“ segir í tilkynningu.