ÚRSLITIN í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu karla ráðast á laugardaginn en þá verður flautað til leiks í lokaumferð Landsbankadeildarinnar klukkan 16.00. *Keflavík fær Framara í heimsókn og FH fer í Árbæinn og leikur við Fylki.
ÚRSLITIN í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu karla ráðast á laugardaginn en þá verður flautað til leiks í lokaumferð Landsbankadeildarinnar klukkan 16.00.
*Keflavík fær Framara í heimsókn og FH fer í Árbæinn og leikur við Fylki.
*Keflavík verður Íslandsmeistari með sigri en nægir jafntefli ef FH vinnur ekki Fylki með meira en einu marki.
*Vinni FH-ingar með tveggja marka mun eða meira verða Keflvíkingar að sigra Fram til að verða meistarar. vs@mbl.is