Atli Guðnason
Atli Guðnason
,,ÞETTA var fínn leikur hjá okkur og einkum og sér í lagi í fyrri hálfleik,“ sagði Atli Guðnason, framherjinn knái í liði FH sem skoraði annað mark liðsins í sigrinum á Breiðabliki í gær.

,,ÞETTA var fínn leikur hjá okkur og einkum og sér í lagi í fyrri hálfleik,“ sagði Atli Guðnason, framherjinn knái í liði FH sem skoraði annað mark liðsins í sigrinum á Breiðabliki í gær.

,,Ég veit ekki hvað það er langt síðan við skoruðum svona snemma leiks en það var virkilega gott að ná því og það lagði grunninn að við náðum yfirráðum í leiknum. Ég met stöðu okkur þannig að við eigum ágæta möguleika á titlinum. Við þurfum auðvitað að vinna Fylki en á móti þurfum við að stóla á Fram og ég trúi ekki öðru en að Framararnir leggi allt í sölurnar enda Evrópusæti í húfi hjá þeim. Pressan er á Keflvíkingum,“ sagði Atli sem skoraði sitt 4. mark í Landsbankadeildinni í sumar. gummih@mbl.is