— Reuters
NÍU daga gamlir tígrisdýrahvolpar sugu í gær með ánægju gyltu á svínabúi í bænum Marianovka, um 400 kílómetra sunnan við Kíev í Úkraínu.
NÍU daga gamlir tígrisdýrahvolpar sugu í gær með ánægju gyltu á svínabúi í bænum Marianovka, um 400 kílómetra sunnan við Kíev í Úkraínu. Móðirin, sem er í dýragarði skammt frá bænum, hafði hafnað hvolpunum og því ljóst þeir hefðu drepist ef þessi óvænta lausn hefði ekki verið notuð. Dæmi eru um að hundar hafi fóstrað tígurhvolpa en ekki er vitað um önnur dæmi þess að svín hafi hlaupið í skarðið.