Kæra ekki frá skiptastjóra Á fimmtudag í síðustu viku var sagt frá rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á flugfélaginu City Star Airlines, sem var í eigu Íslendinga.

Kæra ekki frá skiptastjóra

Á fimmtudag í síðustu viku var sagt frá rannsókn efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra á flugfélaginu City Star Airlines, sem var í eigu Íslendinga. Í fréttinni kom fram að upphaflega hefði kæra borist frá skiptastjóra þrotabús flugfélagsins, fengust þær upplýsingar frá deildinni. Hið rétta er að kæran barst frá öðrum einstaklingi sem tengist félaginu. Er hlutaðeigandi beðinn afsökunar á mistökunum.