Helgi Hjörvar
Helgi Hjörvar
Eftir Helga Hjörvar: "...nauðsynlegt að hefja hið fyrsta pólitíska ferlið sem leitt getur til inngöngu í ESB. Ekki eru líkur til að aðrir stjórnmálaflokkar en Samfylkingin geti sameinað fylgismenn sína um að rétt sé að sækja um."

Í ÞEIRRI tvísýnu í efnahagsmálum sem ég reifaði í blaðinu í gær er mikilvægt að skilja að fullu við þá afstöðu að „við höfum samt rétt fyrir okkur“ og þetta sé ímyndarvandi og ranghugmyndir útlendinga.

Réttilega hafa margir sett fram efasemdir um peningamálastefnuna sem fylgt hefur verið frá 2001, hennar háu vexti og gengissveiflur. Sú tilraun hefur a.m.k. ekki skilað tilætluðum árangri; verðtryggingarkerfið dregur úr áhrifum stýrivaxta, áhrif gengis á kaupgleði Íslendinga eru trúlega vanmetin, e.t.v. hófst hækkun stýrivaxta of seint, lækkun bindiskyldu misráðin o.s.frv. Oft er gagnrýnin hinsvegar ábyrgðarlaus svo sem í upphrópunum um tafarlausa lækkun vaxta. Það kann að vera til vinsælda fallið, enda almenningur langþreyttur á sveiflum og vaxtaokri. Þegar vandinn er lausafjárskortur og verðbólga 15% er svarið augljóslega ekki vaxtalækkun. Hitt er mikilvægt að um leið og aðstæður skapast til vaxtalækkana verði það nýtt þá þegar og þeim aðstæðum viðhaldið svo lækka megi vexti hratt.

Þetta er afleiðing ofþenslu og þeirrar framsóknarmennsku að ætla að gera allt fyrir alla strax. En nú er ekki tíminn til að guggna því tímabundinn samdráttur er barnaleikur hjá viðvarandi verðbólgu.

Viðvarandi útþensla ríkisútgjalda, ótæpilegar skattalækkanir og yfirboð Íbúðalánasjóðs spilltu allri viðleitni Seðlabankans og gerðu framkvæmd stefnunnar illmögulega. Nú ríður á að samkvæmni gæti með Seðlabanka og ríkisstjórn um túlkun ástandsins og nauðsynlegar aðgerðir, því ef þessir burðarásar hagstjórnar eru ekki á einu máli hvernig á þá umheimurinn að hafa traust á landinu? Þá þarf að efla faglegan trúverðugleika bankans, með því að leggja af bankaráðið, bæta gagnaöflun og úrvinnslu, láta bankastjórn rökstyðja stefnu sína opinberlega o.s.frv.

Hlutabréfin heim?

Forysta atvinnurekenda og launafólks hefur haft uppi mikla gagnrýni um aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar. Það er athyglisvert þegar haft er í huga að lífeyrissjóðir undir þeirra forystu geyma hundruð milljarða erlendis. Ýmsir hafa bent á að nú ætti að losa þær fjárfestingar sem hagfellt er að losa og flytja heim. Enda ætti að vera sjóðunum hagstætt að flytja eignir heim með krónuna svo veika en í þeirri mynt eiga þeir síðar að greiða lífeyri.

Því verður þó að sýna skilning að verð erlendra eigna hefur lækkað og því margt sem ekki væri skynsamlegt að selja nú. Ennfremur er sú áhættudreifing sem í erlendum eignum lífeyrissjóðanna felst ákjósanleg. Því væri hitt trúlega miklu farsælla að lífeyrissjóðirnir beittu erlendum eignum sínum til að afla erlends lausafjár í arðbærar fjárfestingar á Íslandi en urmull slíkra tækifæra mun opnast á næstunni. Þannig mætti allt í senn halda hinum erlendu eignum, láta þær vinna og stuðla að stöðugleika á Íslandi. Talsmenn vinnumarkaðarins þurfa að gera grein fyrir því hvernig best sé að nýta afl lífeyrissjóðanna við núverandi aðstæður.

Hlutverk banka

Mestar kröfur eigum við þó, eins og aðrar þjóðir, að gera til bankanna. Kostir virðast því samfara að dreifa áhættu þannig að saman fari eignarhald viðskiptabanka og fjárfestingabanka. Nauðsynlegt er þó að gera allt aðrar kröfur til fjárfestingaþáttarins en viðskiptabankastarfseminnar um eiginfjárhlutfall o.fl. Rekstrarlegur aðskilnaður þessara þátta gæfi yfirvöldum færi á því að verja skilyrðislaust viðskiptabankastarfsemina en vega meira og meta fjárfestingabankana eins og bandarísk og bresk yfirvöld hafa gert.

Við viljum byggja upp þjónustusamfélag með þeim sterka fjármálageira sem það krefst. Þannig sköpum við áhugaverð störf og lífskjör fyrir komandi kynslóðir. Til þess þurfum við til skamms tíma að skapa krónunni mun sterkari varasjóð. Hitt er líklegt að til lengri tíma rýrni hagnaður fjármálafyrirtækja og þau muni ekki geta greitt kostnað við slíkan varasjóð. Því sé einboðið að taka upp evru, vilji menn ekki afturhvarf til framleiðslusamfélagsins.

Það verður að gera þá kröfu á næstu misserum að bankarnir sýni ábyrgð gagnvart fólki m.a. með því að afleggja ábyrgðarmannakerfið og innleiða greiðsluaðlögum til að koma í veg fyrir keðjuverkun greiðsluerfiðleika. Við þurfum líka að læra af lausunginni á uppgangstímunum og skerpa aðhald og eftirlit með fjármálamarkaðinum.

Afnám tolla og stimpilgjalda

Veislugleði í útgjöldum ríkis og sveitarfélaga á þensluskeiðinu var óhófleg. Þörf er á aga í opinberum fjármálum og aðhaldi, m.a. með beitingu viðurlaga við brotum á fjárlögum. Þá er mikilvægt að sameina sveitarfélög og setja skorður við hallarekstri þeirra en skipulagsskortur olli nokkru um offjárfestingu á húsnæðismarkaði. Allar spár segja ríkissjóð með halla á komandi ári. Mikilvægt er að til lengri tíma sé aðhaldsstig fjárlaga aukið og rekstrarafgangi náð með aðgerðum, jafnt til að minnka útgjöld og auka tekjur.

Samdráttarskeiðið framundan verður einkum í og við höfuðborgina og mikilvægt að versnandi hagur ríkissjóðs dragi ekki úr framkvæmdum þar. Líklega verður að taka á næstu árum erfiðar ákvarðanir, jafnvel um hækkun gjalda og skatta, þó eru tilteknar álögur sem vert væri að lækka nú. Afnám stimpilgjalda hófst í sumar en rétt væri að afnema þau með öllu tafarlaust. Einnig þarf að lækka innflutningsálögur á matvörur en það leiðir til lítils tekjutaps miðað við þau miklu áhrif sem það hefði á matarverð í landinu. Í verðbólgu eins og nú er sérlega brýnt að leita leiða til að létta útgjöld til nauðþurfta sem koma hinum efnaminnstu best.

Félagslegur stöðugleiki

Mikilvægt er að huga sérstaklega að hinum tekjulægri, öryrkjum og ellilífeyrisþegum, og að því að efla almennan sparnað í landinu. Félagslegur stöðugleiki er nefnilega til langframa forsenda fyrir efnahagslegum stöðugleika. Sá félagslegi og fjárhagslegi styrkur sem við nú sækjum í lífeyrissjóðakerfið okkar á að vera okkur hvatning til að styrkja enn frekar sparnað svo sem húsnæði og séreignarlífeyri. Mikilvægt væri að gera meðal- og lágtekjufólki kleift að taka þátt í hinu síðarnefnda í auknum mæli. Hinir betur settu þurfa einnig að leggja af mörkum til félagslegs stöðuleika og nauðsynlegt er fyrir fjármálastöðugleika að atvinnulífið taki fyrir ofurlaunasamninga. Hitt er hneisa fyrir stjórnmálaforystuna að hún hafi ekki einfaldlega getað afnumið eftirlaunalögin frá 2003.

Þjóðin á að velja

Í bráðlæti okkar níðum við jafnaðarmenn stundum niður íslensku krónuna óígrundað. Staðreyndin er sú að krónan reyndist okkur stundum vel við að skapa hér eftirsóknarverð lífskjör og byggja upp sjávarútveg og stóriðju meðan fjármagnshreyfingar voru ófrjálsar og gjaldeyrismarkaðir miklum takmörkunum háðir milli landa. Þetta er horfinn heimur. Í opnu alþjóðlegu hagkerfi nútímans má hins vegar efast um að hún dugi. Margt bendir til að þó að krónan hafi þjónað gærdeginum, mæti evran margfalt betur væntingum okkar um morgundaginn, hvort sem er á sviði verslunarfrelsis, matvöruverðs, vaxtastigs eða atvinnuþróunar. Jafnframt því sem ríkisstjórnin vinnur að því að ná hér stöðugleikaskilyrðunum fyrir inngöngu í evrópska myntsamstarfið er nauðsynlegt að hefja hið fyrsta pólitíska ferlið sem leitt getur til inngöngu í ESB. Ekki eru líkur til að aðrir stjórnmálaflokkar en Samfylkingin geti sameinað fylgismenn sína um að rétt sé að sækja um. En þótt hina flokkana skorti pólitískt þrek í stærsta hagsmunamáli samtímans, þarf Ísland að taka afstöðu. Það er því brýnt að stjórnarflokkarnir nái saman um að gefa þjóðinni færi á því að greiða atkvæði um hvort sækja eigi um aðild.

Því miður hafa einfeldningslegar hugmyndir um upptöku evru án aðildar að ESB tafið umræðuna. Sú hugmynd gengur út á að Evrópa láni okkur myntina sína og Seðlabankann sinn sem bakhjarl Íslands og þar með íslensku bankanna svo þeir geti svo haldið áfram að keppa hraustlega um hærri innlánsvexti og ýmis fjárfestingartækifæri við evrópsku bankana. En við viljum samt ekki verða hluti af sambandi þessara landa sem við viljum að hjálpi okkur við að keppa við sig. Órar af þessu tagi eru auðvitað bara tímasóun, því annaðhvort göngum við í ESB eða spjörum okkur án þeirra aðstoðar í samkeppni þjóðanna. Það er ekki bæði hægt að eiga kökuna og éta hana, jafnvel þó við séum Íslendingar. Það er rangt að aðildarumsókn gagnist ekki í vanda dagsins. Hún leysir hann ekki en er mikilvægur hluti þess trúverðugleika sem við verðum að efla. Nú þegar hjarðhegðun markaðarins er í hámarki er mikilvægt að stefna okkar verði skýr og aðgerðir ákveðnar. Umbrotatímar í efnahagsmálum eru jafnan tímar mikilla tækifæra. Grípum þau.

Höfundur er alþingismaður.

Höf.: Helga Hjörvar