Strákaleikir „Prófkjörin eru bara strákaleikir.

Strákaleikir „Prófkjörin eru bara strákaleikir. Vettvangur fyrir framapot og valdabaráttu sem hentar körlum en konur taka síður þátt í,“ segir Svanur Kristjánsson , prófessor í stjórnmálafræði, sem heldur erindi á málþingi KRFÍ í hádeginu í dag.

„Lausnin er fléttulistar. Þannig taka flokkarnir ábyrgð á sínum málum, jafna kynjahlutföllin og fá öðruvísi stefnumótun þar sem er hugsað um almannaheill en ekki sérhagsmuni sumra karla.“