<h4>Niðurföllin hreinsuð</h4>GOTT er að vera búinn að hreinsa niðurföllin fyrir þessa miklu rigningarviku sem nú er spáð. Starfsmenn Reykavíkurborgar vinna hér við það.

Niðurföllin hreinsuð

GOTT er að vera búinn að hreinsa niðurföllin fyrir þessa miklu rigningarviku sem nú er spáð. Starfsmenn Reykavíkurborgar vinna hér við það. — Morgunblaðið/Valdís Thor
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Óbreyttir borgarar í stríðsátökum – ekki einfalt mál NOKKUÐ hefur verið um fréttir af falli óbreyttra borgara í stríðsátökum í Austurlöndum að undanförnu. Það er ekkert nýtt að óbreyttir borgarar séu drepnir í stríðsátökum.

Óbreyttir borgarar í stríðsátökum – ekki einfalt mál

NOKKUÐ hefur verið um fréttir af falli óbreyttra borgara í stríðsátökum í Austurlöndum að undanförnu. Það er ekkert nýtt að óbreyttir borgarar séu drepnir í stríðsátökum. Nú er mikið rætt um hryðjuverk í Austurlöndum nær. Sumum loftárásum í seinni heimsstyrjöldinni, t.d. loftárás Breta á Dresden, mætti líkja við hryðjuverk. Liðsmenn vestrænna herja og bandamenn þeirra, sem eiga í átökum við skæruliða og uppreisnarmenn í þessum löndum, og stuðningsmenn al-Quaida, liggja undir ámæli um að gera árásir á óbreytta borgara. Þetta er ekki einfalt mál. Íslensk kona sem býr í landi fyrir botni Miðjarðarhafs lýsti t.d. aðferðum Hisbollah þegar þeir skjóta eldflaugum á Ísrael. Hún kallaði þá heigla. Aðferð þeirra er að fara með skotpallana inn í íbúðahverfi, skjóta eldflauginni og hafa sig síðan á brott. Ísraelar svara með því að skjóta til baka á þann stað sem árásareldflaugin kom frá. Óbreyttir borgarar eru þannig gerðir að fórnarlömbum og andstæðingarnir, í þessu tilfelli Ísraelar, eru sakaðir um að gera árásir á óbreytta borgara. Gott að nota slíkt í áróðursstríðinu.

Bókstafstrúarmenn islamista afsaka þessa hegðun sína með því að vísa í heilagt stríð gegn villutrúarmönnum og að fórnarlömbin séu því píslarvottar sem eigi vísa paradísardvöl fyrir bragðið. Sama gildir um þá sem falla í sjálfsmorðsárásum, en flestir þeirra eru trúbræður árásarmannanna. Skæruliðar Hamas í Palestínu beita sömu aðferðum. Al-Quaida-liðar og stuðningsmenn þeirra í Írak beita einnig þessum aðferðum og nú eru talibanar í Afganistan farnir að fara að dæmi þeirra. Þegar óbreyttir borgarar falla í stríðsátökum er auðvelt að nota það í áróðursskyni og sökin oftast talin vera þeirra sem eru að svara fyrir árásir sem þessar. Þetta er þekkt úr Víetnam-stríðinu þar sem óbreyttir borgarar og jafnvel börn voru notuð til þess að fremja hermdarverk á hermönnum Bandaríkjamanna og samherja þeirra. Hermenn Viet-Kong dulbúnir sem bændur gerðu oft árásir á hermenn úr launsátri. Börn voru jafnvel notuð í þessu skyni. Drengur á reiðhjóli hjólar framhjá hópi hermanna sem sitja við götu fyrir utan veitingahús og drengurinn varpar að þeim handsprengju sem grandar þeim og hjólar svo á brott.

Margt fleira í þessum dúr var algengt í því stríði. Afleiðingin var spenna og taugaveiklun hjá hermönnum bandamanna sem kusu að taka enga áhættu, skjóta fyrst og spyrja svo á eftir. Þetta eru atriði sem fólk verður að hafa í huga þegar deilt er á hermenn vesturveldanna fyrir dráp á óbreyttum borgurum. Slíkir atburðir eru einnig daglegt brauð annars staðar í heiminum, t.d. í Afríku, í Súdan, Kongó og Sómalíu þótt vestrænir stríðsmenn komi þar hvergi nærri. Þessu verður ekki breytt fyrr en SÞ koma sér upp hersveitum sem hægt er að senda til slíkra svæða til þess að skakka leikinn. En á meðan stórveldin hafa neitunarvald í öryggisráðinu er engin von til þess að SÞ verði alvöru alþjóðasamtök. Stríð er alltaf óhugnaður en það er of einfalt mál að kenna bara öðrum aðilanum um allt sem miður fer.

Hermann Þórðarson,

fyrrverandi flugumferðarstjóri.


Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is