Uppsagnir Ekki fleiri áformaðar.
Uppsagnir Ekki fleiri áformaðar.
TUTTUGU starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá fjarskiptafyrirtækinu Vodafone. Að sögn Hrannars Péturssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, taka uppsagnirnar til allra deilda fyrirtækisins.

TUTTUGU starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá fjarskiptafyrirtækinu Vodafone. Að sögn Hrannars Péturssonar, upplýsingafulltrúa fyrirtækisins, taka uppsagnirnar til allra deilda fyrirtækisins. „Ytri skilyrði eru mjög óhagstæð fyrir öll fyrirtæki í landinu og við erum auðvitað ekki undanskilin þeirri þróun. Það eru miklar kostnaðarhækkanir í rekstrinum, og ekki síst vegna gengisþróunar,“ segir Hrannar og bætir við að verið sé að grípa til óhjákvæmilegra aðgerða.

camilla@mbl.is