„VIÐ erum eins tilbúnar og hægt er fyrir þennan leik,“ sagði Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, varnarjaxlinn úr KR, við Morgunblaðið í Frakklandi í gær.
„VIÐ erum eins tilbúnar og hægt er fyrir þennan leik,“ sagði Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, varnarjaxlinn úr KR, við Morgunblaðið í Frakklandi í gær. „Stemningin er afar jákvæð almennt og þá á ég við að við erum ótrúlega tilbúnar án þess þó að vera undir óþarfa pressu. Öll pressan vegna þessa kemur frá okkur sjálfum og allar langar okkur enn lengra en þetta. Það er Evrópukeppnin sem er að heilla okkur og að komast þangað yrði sannur draumur fyrir liðið og kvennaknattspyrnuna í heild sinni og leikurinn gegn Frökkum er sá steinn sem við þurfum að yfirstíga til að uppfylla þann draum. Þannig augum lítum við á þetta viðfangsefni. En auðvitað er alls ekki öll nótt úti heldur ef þetta gengur ekki eftir. En okkur langar að tryggja okkur á EM og þessi leikur er einfaldasta leiðin til þess.“ albert@mbl.is