Þræðir „Innsetningin minnir á lífrænan gróður, strúktúr barnaleikfangs, eða vísindalega rannsókn en tengingin við vefnað er einnig sterk...“ segir meðal annars í dómi.
Þræðir „Innsetningin minnir á lífrænan gróður, strúktúr barnaleikfangs, eða vísindalega rannsókn en tengingin við vefnað er einnig sterk...“ segir meðal annars í dómi.
Til 11. janúar. Opið alla daga frá kl. 10–17 og til kl. 22 á fim. Aðgangur ókeypis.

FYRIR tveimur árum var Ingibjörg Jónsdóttir með persónulega og heilsteypta sýningu í Listasafni ASÍ og sýndi þar að hún er ein okkar áhugaverðustu veflistamanna. Nú kemur hún aftur á óvart með grípandi innsetningu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, undir titlinum Samsíða heimar.

Ingibjörg sýnir annars vegar veggverk og hins vegar hefur hún byggt og breytt sýningarsalnum í lokað rými fyrir innsetningu sem vex eins og gróður upp með veggjunum. Þræðir í nokkrum litum, sumum sjálflýsandi, eru undnir upp á mjó kefli sem fest eru saman í sköpun viðkvæmrar byggingar.

Í þessu aflokaða rými hefur Ingibjörg sett upp þriggja mínútna ljósasýningu sem minnir á skiptingu dags og nætur. Litur veggjanna breytist í mismunandi birtu, einnig litir þráðanna á keflunum og skuggarnir lifna og hverfa á víxl. Innsetningin minnir á lífrænan gróður, strúktúr barnaleikfangs, eða vísindalega rannsókn en tengingin við vefnað er einnig sterk, nokkuð sem verður til á löngum tíma.

Tíminn er áleitinn þáttur í verkum Ingibjargar og hér renna saman áreynslulaust samtíminn og hefðirnar, auk þess sem tími áhorfandans verður órjúfanlega hluti af verkinu.

Ég var svo heppin að vera stödd í salnum um leið og hópur leikskólabarna sem undu sér vel í þessum töfrandi heimi, svo vel að þegar ég fór var enn verið að biðja um meira, „Bara einu sinni enn“, og gaf það verkinu aukið líf um leið og hér kom í ljós að innsetningin virkar bæði hreint sjónrænt séð og einnig sem tilefni til vangaveltna. Texti í sýningarskrá ýtir undir hið síðarnefnda.

Veggverk ofið úr steinflögum, pergamenti og nælonþræði er síðan forvitnilegt verk, nútímalegt og sígilt í senn. Sýningin gefur til kynna breidd í vinnubrögðum listakonunnar og ekki hefði verið verra að sjá meira.

Ragna Sigurðardóttir

Höf.: Ragna Sigurðardóttir