„Ég og Stefán Hallur kynntumst vel í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem við sátum saman í stjórn leikfélagsins,“ segir Björn Thors leikari. „Þá strax kynntist ég því hversu orkumikill maður hann er.

„Ég og Stefán Hallur kynntumst vel í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem

við sátum saman í stjórn leikfélagsins,“ segir Björn Thors leikari. „Þá strax kynntist ég því hversu orkumikill maður hann er. Stefán er gríðarlega metnaðargjarn og vinnusamur fram úr hófi og hann er góður vinur. Vinur vina sinna. Margir telja hann myndarlegan og vissulega ber hann af í hópi manna enda hávaxinn maður.“