Varðskip Knud Rasmussen við Grænland.
Varðskip Knud Rasmussen við Grænland.
DANSKA varðskipið Knud Rasmussen kom til Reykjavíkur í gær. Skipið er nýjasta skip danska flotans og er sérstaklega ætlað til siglinga á hafísslóðum. Varðskipið verður opið almenningi í dag, laugardag, milli kl.

DANSKA varðskipið Knud Rasmussen kom til Reykjavíkur í gær. Skipið er nýjasta skip danska flotans og er sérstaklega ætlað til siglinga á hafísslóðum. Varðskipið verður opið almenningi í dag, laugardag, milli kl. 13 og 16 þar sem það liggur við bryggju á Miðbakka.

Skipið var nefnt eftir danska landkönnuðinum Knud Rasmussen (1879-1933). Skrokkur og yfirbygging skipsins voru smíðuð í Póllandi en gengið var frá innréttingum og tækjabúnaði í Danmörku. Skipið er ætlað til eftirlits- og björgunarstarfa á hafinu umhverfis Grænland og sérútbúið sem slíkt. Um borð er 12 m langt björgunarskip sem sjósett er úr skutrennu skipsins. Varðskipið er 71,8 metrar að lengd og breidd þess er 14,6 m. Í áhöfn skipsins eru að jafnaði 18 manns en aðstaða er fyrir 43 um borð. Talsverð endurnýjun danska flotans stendur nú yfir en tvö skip af sömu tegund bætast brátt við og verða öll skipin á Grænlandi og leysa þar með af hólmi skip sem þjónað hafa svæðinu síðastliðin 40 ár.