Heilbrigt hjarta „Í fyrra mætti á annað hundrað manns í hlaupið og við vonumst til að enn fleiri mæti í ár,“ segir Bylgja Valtýsdóttir , upplýsingafulltrúi Hjartaverndar, en á morgun verður Hjartadagshlaup á Hálsatorgi í Kópavogi í tilefni...

Heilbrigt hjarta

„Í fyrra mætti á annað hundrað manns í hlaupið og við vonumst til að enn fleiri mæti í ár,“ segir Bylgja Valtýsdóttir , upplýsingafulltrúi Hjartaverndar, en á morgun verður Hjartadagshlaup á Hálsatorgi í Kópavogi í tilefni af Alþjóðlega hjartadeginum. Hlaupið er haldið í annað sinn. „Það kostar ekkert að taka þátt en samt eru vegleg verðlaun. Það verður ræst í þriggja kílómetra hlaupið klukkan 10.50 en í fimm kílómetra hlaupið klukkan 11.00.