Vignir Rafn Vignisson leikari og Stefán Hallur, sem leikstýra saman sýningunni Macbeth, kynntust þegar þeir voru við nám í leiklistardeild Listaháskóla Íslands. „Stefán Hallur er alltaf til í allt.

Vignir Rafn Vignisson leikari og Stefán Hallur, sem leikstýra saman sýningunni Macbeth, kynntust þegar þeir voru við nám í leiklistardeild Listaháskóla Íslands.

„Stefán Hallur er alltaf til í allt. Það er sama hversu brjálæðislegar hugmyndirnar eru, hann er alltaf tilbúinn að prófa,“ segir Vignir Rafn. „Hann er mikill listamaður. Og hann er einn ferkantaðasti listamaður sem ég þekki, sem er ekki endilega neitt slæmt.“