Katrín Jónsdóttir
Katrín Jónsdóttir
„ÉG er búin að vera svo lengi að orðið að mér finnst athyglisverðast hve mjög munar á liðinu nú og þegar ég var að byrja fyrir fleiri árum en ég kæri mig um að segja frá.

„ÉG er búin að vera svo lengi að orðið að mér finnst athyglisverðast hve mjög munar á liðinu nú og þegar ég var að byrja fyrir fleiri árum en ég kæri mig um að segja frá. Bæði er landsliðið það besta sem við höfum átt og þetta segi ég án þess að gera lítið úr þeim er spilað hafa með því áður. En hópurinn nú er svo fjölbreyttur að unun er að vita. Við eigum teknískar stelpur, marksæknar stelpur, stelpur sem standa af sér hverja tæklinguna á fætur annarri og enn aðrar sem kannski standa ekki upp úr í neinu en berjast hverja einustu mínútu af þeim 90 sem hver leikur varir. Það er líka skondið að rifja upp að í fyrstu landsleikjum mínum erlendis 1994 þá var einn blaðamaður með okkur en nú í dag eru allir íslensku miðlarnir með okkur hér og við finnum vel fyrir áhuganum heima. Við getum ekki annað en blómstrað í slíku umhverfi.

albert@mbl.is