ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu leikur í dag mikilvægasta leik í sögu landsliðsins þegar það etur kappi við Frakka í hreinum úrslitaleik um laust sæti í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða. ,,Stelpunum okkar“ dugar jafntefli til að tryggja sér farseðilinn í úrslitakeppnina sem fram fer í Finnlandi á næsta ári en fari Frakkar með sigur af hólmi fær íslenska liðið annað tækifæri en þá leikur það í umspili um laust sæti.
Mikill áhugi er hjá íslensku þjóðinni á leiknum. Mikið húllumhæ verður í Vetrargarðinum í Smáralind þar sem leikurinn verður sýndur á risatjaldi og mótanefnd KSÍ ákvað að færa leikina í lokaumferð Landabankadeildar karla til klukkan 16 en leikur Frakka og Íslendinga verður flautaður á klukkan 14 að íslenskum tíma. | Íþróttir