ORÐRÓMUR er á kreiki á bandarískum bloggsíðum um að Barack Obama hyggist fá varaforsetaefni sitt, Joe Biden, til að draga sig í hlé af heilsufarsástæðum. Muni Hillary Clinton þá taka við. Sagt er frá þessu í breska götublaðinu Daily Mail .

ORÐRÓMUR er á kreiki á bandarískum bloggsíðum um að Barack Obama hyggist fá varaforsetaefni sitt, Joe Biden, til að draga sig í hlé af heilsufarsástæðum. Muni Hillary Clinton þá taka við.

Sagt er frá þessu í breska götublaðinu Daily Mail . Fullyrt er að val Johns McCains á Sarah Palin hafi aukið svo áhugann á framboði McCains að Obama hyggist bregðast við með þessum hætti.

Flestir viðmælendur Daily Mail vísa málinu á bug sem algerum tilbúningi. Talsmenn Obama hafa ekki tjáð sig enn um málið. kjon@mbl.is