Fyrrverandi fjármálastjóri Garðabæjar hefur endurgreitt þá fjárhæð sem hann varð uppvís að að hafa dregið að sér í byrjun ágúst. Um leið og upp komst að hann hefði dregið sér 9,2 milljónir króna lét hann af störfum.
Fyrrverandi fjármálastjóri Garðabæjar hefur endurgreitt þá fjárhæð sem hann varð uppvís að að hafa dregið að sér í byrjun ágúst. Um leið og upp komst að hann hefði dregið sér 9,2 milljónir króna lét hann af störfum. Í framhaldi undirritaði hann greiðslutryggingu til Garðabæjar. Málið er enn í rannsókn hjá lögreglunni og ekki er vitað hvenær þeirri rannsókn lýkur. kyg