Opið Það var nóg að gera í nýja Staðarskála strax við opnun. Húsnæðið er rúmgott og góð aðstæða bæði fyrir gesti og starfsfólk.
Opið Það var nóg að gera í nýja Staðarskála strax við opnun. Húsnæðið er rúmgott og góð aðstæða bæði fyrir gesti og starfsfólk. — Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Hrútafjörður | Mikið var að gera í Staðarskála fyrsta daginn í nýja söluskálanum.

Eftir Helga Bjarnason

helgi@mbl.is

Hrútafjörður | Mikið var að gera í Staðarskála fyrsta daginn í nýja söluskálanum. Iðnaðarmenn voru að vinna við frágang húss og lóðar og gamlir viðskiptavinir litu inn til að sjá hvort gamli Staðarskálaandinn hefði ekki örugglega komið með vestur yfir ána. Starfsfólkið vildi gera sitt til að fólkið upplifði breytinguna þannig.

Framandi réttir með kjötsúpunni

Nýr vegur um Hrútafjarðarbotn var opnaður fyrr í vikunni og beint í kjölfar þess var nýr Staðarskáli opnaður. Hann kemur í stað skálanna á Stað og Brú, Brúarskáli hefur verið rifinn en Staðarskáli fluttist úr alfaraleið með breytingum á veginum. „Við vonumst til að enn fleiri komi við hjá okkur. Við getum sinnt viðskiptavinunum betur í þessari nýju aðstöðu,“ segir Kristinn Guðmundsson, stöðvarstjóri hjá N1 í Staðarskála.

Staðarskáli hefur lengi verið einn af helstu viðkomustöðum ferðafólks á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar. Þar hefur veitingastaðurinn verið í aðalhlutverki en einnig bensínafgreiðsla og sjoppa. Lögð hefur verið áhersla á íslenskan heimilismat. Kristinn segir að haldið verði í þessa hefð en möguleikarnir sem skapast með stækkun veitingastaðarins verði nýttir, meðal annars til að bjóða upp á nýja og framandi rétti með kjötsúpunni og ástarpungunum sem verið hafa með vinsælustu réttunum í Staðarskála.

Í nýjum Staðarskála er aukið pláss fyrir verslunina. Hún er nú rekin undir merkjum Nestis sem flestir þekkja.

„Þetta er erill og mikil vinna. En vinnan er skemmtileg, maður hittir margt fólk og kynnist skemmtilegum persónuleikum,“ segir Kristinn. Akureyrarrútan kemur við í Staðarskála og margir vöruflutningabílstjórar, auk vegfarenda á eigin bílum. Vörubílstjórarnir sýndu hug sinn til staðarins þegar þeir þeyttu flautur bíla sinna framan við Staðarskála til að kveðja gamla skálann.

Kristinn segir ekki endanlega ákveðið hvernig húsnæði gamla skálans á Stað verður notað nú þegar hlutverki þess er lokið. Segir hann uppi hugmyndir um að hafa þar aðstöðu fyrir starfsfólk.

Í hnotskurn
» Bræðurnir á Stað, Magnús og Eiríkur Gíslasynir, hófu ásamt Báru Magnúsdóttur, konu Magnúsar, veitingasölu í Staðarskála 1960. Fjölskyldan hefur alla tíð séð um reksturinn, Vilborg Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og Kristinn Guðmundsson maður hennar.
» Umfang rekstrarins hefur aukist mjög á þessum tíma, með aukinni umferð um þjóðveginn. Gisting hefur verið í boði frá því byggt var við Staðarskála 1971 og nýtt gistihús var opnað 1994.
» Kaupfélag Hrútfirðinga byggði lítinn söluskála í nágrenni við símstöðina í Brú árið 1954. Hann var stækkaður og rekinn undir heitinu Veitingaskálinn Brú.

Orðin hluti af innréttingunni

„Ég vona að það verði hægt að ná upp sömu stemningunni hér,“ segir Bára Magnúsdóttir í Staðarskála. Hún hefur unnið í Staðarskála frá upphafi, var eiginlega orðin hluti af innréttingunni. Hún var komin á nýja staðinn. „Já, ég verð hérna eitthvað,“ segir hún um framhaldið.

„Ætli það sé ekki þjónustan og persónulegt viðmót sem fólk fær. Við ætlum að reyna að halda því hér,“ segir Bára þegar leitað er eftir skýringum á vinsældum Staðarskála. „Það er orðið gríðarlega mikið að gera allt árið, þótt mest sé á sumrin. Ég vona að það haldist,“ segir Bára.