— Morgunblaðið/Kristinn
HÖFUÐBORGARBÚAR hafa ekki farið varhluta af vætutíðinni sem ríkt hefur að undanförnu. Fyrr í vikunni rigndi þannig látlaust án uppstyttu í rúman sólarhring, sem telst til tíðinda ef marka má skrif Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings á veðurbloggi...
HÖFUÐBORGARBÚAR hafa ekki farið varhluta af vætutíðinni sem ríkt hefur að undanförnu. Fyrr í vikunni rigndi þannig látlaust án uppstyttu í rúman sólarhring, sem telst til tíðinda ef marka má skrif Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings á veðurbloggi hans. Á vef sínum bendir Einar á að Reykjavík sé ekki þekkt fyrir stórrigningar, enda njóti höfuðborgarsvæðið úrkomuvars frá Reykjanesfjallgarðinum og Hengli.