Fjármálaráðuneytið fyrir hönd íslenska ríkisins hefur ákveðið að dómkvaddir sérfræðingar skuli fengnir til þess að meta tjón íslenska ríkisins vegna samráðs Skeljungs, Olís og Kers, áður Olíufélagsins hf.

Fjármálaráðuneytið fyrir hönd íslenska ríkisins hefur ákveðið að dómkvaddir sérfræðingar skuli fengnir til þess að meta tjón íslenska ríkisins vegna samráðs Skeljungs, Olís og Kers, áður Olíufélagsins hf., fyrir útboð Landhelgisgæslunnar, Vegagerðarinnar og lögreglunnar árin 1995 og 1996.

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður og einn eigenda Landslaga, fer með málið fyrir hönd ríkisins.

Ákveðið var að kalla til matsmenn fyrr í vikunni eftir fund Vilhjálms með fulltrúum fjármálaráðuneytisins um gang málsins.

Háar upphæðir

Mál íslenska ríksins gegn olíufélögunum byggir á því að ólögmætt samráð olíufélaganna fyrir útboð hafi valdið tjóni. Olíufélögin neituðu að viðurkenna bótaskyldu vegna samráðs og því ákvað ríkið að fara með málið fyrir dómstóla.

Stærsti einstaki viðskiptavinur olíufélaganna á vegum ríkisins var Landhelgisgæslan. Heildarviðskipti hennar vegna olíukaupa námu um 417 milljónum króna frá 1996 til loka árs 2001 hið minnsta, sé mið tekið af verðlagi ársins 2005.

Heildarviðskipti lögreglunnar á fyrrnefndu tímabili námu 310 milljónum króna og Vegagerðarinnar tæplega 178 milljónum.

Sjö ár síðan

Tæplega sjö ár eru síðan samkeppnisyfirvöld gerðu húsleit í höfuðstöðvum olíufélaganna og komu upp um samráð olíufélaganna. Hinn 29. janúar 2005 voru olíufélögin dæmd til greiðslu 1,5 milljarða króna af úrskurðarnefnd samkeppnismála. Tæplega fjögur ára hafa liðið frá því félögin voru sektuð þar til matsmenn voru kallaðir til þess að meta tjón ríkisins vegna samráðsins. Helsta ástæða þessa dráttar er að mikill tími hefur farið í að afla gagna.

magnush@24stundir.is