Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
KRISTINN H. Gunnarsson, alþingismaður og þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, telur sjálfsagt að flokksmenn ræði saman og reyni að útkljá deiluefni sín.

KRISTINN H. Gunnarsson, alþingismaður og þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, telur sjálfsagt að flokksmenn ræði saman og reyni að útkljá deiluefni sín. Málin batni lítið við að reyna að útkljá þau í fjölmiðlum og bera fjarstadda menn sökum, hvort heldur á miðstjórnarfundi eða félagsfundi. „Það er ekki leiðin til þess að lægja öldur,“ sagði Kristinn í samtali við mbl.is í gær.

Kristinn var ekki á fundinum sem Reykjavíkurfélög flokksins boðuðu til í fyrrakvöld. Þar var m.a. deilt hart á framgöngu hans. Spurður um viðbrögð við því kvaðst Kristinn ekkert hafa að segja um það sem hann ekki heyrði.

Kristinn sagði að þeir sem vildu gætu tekið málin upp við sig. Það hafi enginn gert hingað til. Fljótlega verða haldnir fundir bæði í þingflokknum og í miðstjórn. Þar muni mönnum gefast tækifæri til þess að ræða þessi mál.