Stefán Örn Stefánsson, faðir Stefáns Halls, segir að sonur sinn hafi í rauninni aldrei lært að labba. „Hann byrjaði bara strax á því að hlaupa. Og þannig hefur hann eiginlega alltaf verið.

Stefán Örn Stefánsson, faðir Stefáns Halls, segir að sonur sinn hafi í rauninni aldrei lært að labba.

„Hann byrjaði bara strax á því að hlaupa. Og þannig hefur hann eiginlega alltaf verið.“ Hann segir jafnframt að þótt hann hafi farið ýmsar krókaleiðir áður en hann varð leikari þá hafi það líklega alltaf blundað í honum. „Hann er líka mjög drífandi og tilfinningaríkur. Og getur bæði verið hrífandi og er hrifgjarn sjálfur.“