Það þarf að hugsa vel um bossann á litlum börnum og blautklútar eru að margra mati mikilvægur hluti af nauðsynlegum bleyjuskiptaútbúnaði. En þeir sem hugsa einnig vel um pyngjuna ættu að huga að því hvar þeir kaupa slíka vöru.

Það þarf að hugsa vel um bossann á litlum börnum og blautklútar eru að margra mati mikilvægur hluti af nauðsynlegum bleyjuskiptaútbúnaði.

En þeir sem hugsa einnig vel um pyngjuna ættu að huga að því hvar þeir kaupa slíka vöru.

Taka má dæmi af pakka með 63 Pampers Sensitive blautklútum, sem er m.a. dýft í baldursbráarvökva og aloa ef marka má umbúðirnar.

Pakkinn kostaði 298 krónur í einni af verslunum Bónuss í Reykjavík nú í vikunni. Sama dag kostaði eins pakki 479 krónur í verslun 11-11, 609 krónur í verslun Lyfju, 640 krónur í verslun 10-11 og heilar 869 krónur í verslun Nóatúns.

Það er engu líkara en að einhverjir hafi mislesið innihaldslýsinguna og haldi að það hafi einnig verið stráð gulldufti á klútana!

gummi@mbl.is