FIMM voru fluttir á slysadeild á fjórða tímanum aðfaranótt sunnudags eftir bílslys á Hringbraut, við mislægu gatnamótin þar sem Hringbraut og Bústaðavegur mætast. Beita þurfti klippum til þess að ná einum farþega úr bifreiðinni.

FIMM voru fluttir á slysadeild á fjórða tímanum aðfaranótt sunnudags eftir bílslys á Hringbraut, við mislægu gatnamótin þar sem Hringbraut og Bústaðavegur mætast.

Beita þurfti klippum til þess að ná einum farþega úr bifreiðinni. Einn þeirra fimm sem lentu í bílslysinu liggur alvarlega slasaður á gjörgæslu Landspítalans. Um hádegisbil í gær var honum enn haldið sofandi í öndunarvél.

Málið er enn í rannsókn og ekki er ljóst að svo stöddu hver tildrög slyssins voru. Bílnum hafði verið ekið í gegnum stálgirðingu sem skilur að umferðina um Hringbraut í gagnstæðar áttir. sigrunhlin@mbl.is