Í viðbragðsstöðu Spilun á að byggja meira á bardögum milli andstæðra fylkinga frekar en endalausum þrautum.
Í viðbragðsstöðu Spilun á að byggja meira á bardögum milli andstæðra fylkinga frekar en endalausum þrautum.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is NÖRDAR um allan heim hafa beðið leiksins Warhammer Online – Age of Reckoning með mikilli eftirvæntingu.

Eftir Ásgeir Ingvarsson

asgeiri@mbl.is

NÖRDAR um allan heim hafa beðið leiksins Warhammer Online – Age of Reckoning með mikilli eftirvæntingu. Liðin eru fjögur ár síðan stórsmellurinn World of Warcraft kom út og gerði allt vitlaust, og má segja að væntingarnar til Warhammer Online hafi verið í réttu hlutfalli við þann tíma sem liðinn er frá útgáfu World of Warcraft .

Nú er stund sannleikans runnin upp, og virðist nördasamfélagið þegar vera farið að skiptast í tvær fylkingar: þá sem eru með Warcraft , og þá sem eru hrifnari af Warhammer . Er fyrirsjáanlegt að það muni verða þrætuepli nörda um langt skeið hvor leikurinn ber af - kannski jafnlengi og deilt hefur verið um hvor er flottari, James T. Kirk eða Jean-Luc Picard.

Leikur landvinninga

Eins og í öllum deilum af þessum toga hafa báðar hliðar ýmislegt til síns máls. Leikirnir hafa sína kosti og galla og er fjarri því hægt að tala um að Warhammer sé einhvers konar framhald eða eftiröpun á Warcraft þó svipaður blær sé á leikjunum.

Í World of Warcraft fer hvað mest púður í að leysa allskyns [langdregnar] þrautir innan leiksins, einn síns liðs eða í góðra vina hópi. Þó Warhammer bjóði upp á þrautir af þessu tagi þá eru þær stuttar og auðunnar, enda ekki aðalatriði leiksins. Aðalfjörið í leiknum felst einkum í því að skapa skemmtilegan allsherjarvígvöll andstæðra fylkinga leikmanna til að berjast um yfirráð í ævintýraheiminum.

Á meðan landamæri Warcraft eru fastmótuð og borgir og virki óvinarins nær ósigranleg, þá gerir Warhammer Online ráð fyrir því að fylkingar góðs og ills berjist um yfirráðin og leikurinn nái í raun hámarki þegar tekst, bókstaflega, að brjóta niður borgarhliðin hjá óvininum og brytja þar alla í spað.

Nokkrir hnökrar

Eins og við er að búast er grafíkin töluvert betri í Warhammer , með alls kyns smáatriðum sem gleðja augað. Útlitshönnuðir leiksins hafa skapað örlítið drungalegri heim en þann sem menn eru vanir úr Warcraft og leikurinn bætir við skemmtilegum fídusum eins og t.d. að hægt er að breyta fleiri atriðum í útliti söguhetjunnar og má þannig breyta lit á búnaði og fatnaði nokkurn veginn eftir eigin höfði.

Þó margt sé betra, nýrra og flottara í Warhammer er leikurinn samt ekki með öllu gallalaus. Það jók til dæmis ekki á hrifningu þess sem þetta skrifar hversu ofboðslega illa gekk að hlaða leiknum inn á tölvuna og byrja að spila. Þurfti mikið að gúggla til að finna leiðbeiningar um hvernig komast mætti framhjá öllum þeim villum og vandræðum sem upp komu. Diskur nr. 1 fór í tölvuna um kvöldmatarleytið, en ekki tókst að byrja að spila leikinn fyrr en kl. þrjú næsta dag.

Ekki bætir úr skák að leikurinn virðist gera allt of miklar kröfur til tölvunnar. Þó tölvan sem undirritaður notaði til spilunar eigi að ráða hæglega við leikinn, þá var ofboðslegt hökt í spiluninni - og hvarf ekki með öllu jafnvel þó grafíkin væri stillt á allralægstu stillingu. Sú truflun sem af þessu hlýst og aðrir smáhnökrar sem safnast saman, gerir það að verkum að það gengur brösulega, og verður ekki jafn ánægjulegt, að berjast við aðra leikmenn.

Spurt að leikslokum

Það er erfitt að segja til um að svo stöddu hvor leikurinn mun verða ofan á: World of Warcraft , sem byggist á stórum grunni harðkjarnanotenda, eða hinn tæknilega bætti og beinskeytti Warhammer .

Leikjasíður eru óðum að fyllast af miklu lofi í garð Warhammer en ævintýraheimurinn er svo stór, og leikurinn því í reynd svo „langur“ að tíminn verður að leiða í ljós hvor verður ofan á. Hönnuðir World of Warcraft sitja auðvitað ekki auðum höndum og senda frá sér viðbótina Wrath of the Lich King í nóvember, og lofa bæði bættri grafík og umsátursmaskínum sem nota má til að salla niður borgarmúra. Verður gaman að sjá hvernig það kemur út.

Tveir leikir af sama meiði

* Leikirnir Warhammer Online og World of Warcraft eru um margt svipaðir og má segja að ævintýraheimur þeirra beggja byggist á þeim grunni sem Tolkien galdraði fram í bókum sínum um ævintýri hobbita, dverga og álfa.

* Warhammer-merkið rekur rætur sínar allt aftur til ársins 1983 þegar samnefndur tindátaleikur (með skrímslum) kom á markað. Mikil nördamenning hefur orðið til í kringum Warhammer-leiki og eru haldin mót og reknar sérverslanir með módelum og helstu aukahlutum.

* Herkænskuleikurinn Warcraft: Orcs & Humans kom út árið 1994 og fylgdi Warcraft II árið 1995 og loks Warcraft III árið 2002. World of Warcraft hlutverka-fjölspilunarleikurinn kom svo árið 2004.

Erlendir dómar Metacritic.com 87/100 PC gamer UK 88/100 Eurogamer 80/100 Gameplanet 80/100